Fara í aðalinnihald

Á morgun er kominn nýr dagur

þ.p. sagði:

Nú er hún Ásta mín lögð af stað heim á leið og því eins gott að fara að venjast því. Við erum orðin svo góðu vön að ég býst við því að þurfa að byrja aðeins upp á nýtt, ef þið skiljið hvað ég á við.


En sem sagt, við mæðgur erum komnar heim eftir að hafa kvatt hana Sibbý út á strætóstöð. Ég vona að allt gangi vel hjá þér, elsku Sibbý og vona að heimferðin gangi vel. Við verðum í bandi þegar þú kemst í band á nýjan leik! Ég er hálftóm núna, Ásta Lísa farin að sofa, ég þreytt en nenni ekki að sofa, þyrfti að laga til en nenni því ekki, ýmislegt annað sem ég gæti gert en ég nenni því ekki heldur. Kannski að ég leggi mig bara eftir allt, veit að ég myndi sofna um leið. Sé til.

Það verður nóg að gera hjá okkur um helgina - JIBBÍ - förum til Roskilde á laugardaginn, hittum þá Jónas & familie og indverskan vinnufélaga strákanna Sandeep og hans kvinnu. Sandeep og frúin ætla að elda inverskt og koma með og mikið hlakka ég til! Á sunnudaginn er hugmyndin að skella okkur á gamlar slóðir út á Amager í heimsókn til Dagnýjar og Hjartar. Ég hlakka líka til þess.

Sem sagt mikið að hlakka til - og það er alltaf gott.

Ég vona að þið hafið það sem allra best hvar í heiminum sem þið eruð. Sérstaklega hlýjar kveðjur og góða strauma sendi ég til útlendingastofnunar, vinnumálastofnunar og stéttarfélags Araba. Makein muskí, jalla jalla!!

Hanna

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Úps!

Svið: Á leið heim í lestinni sunnudagskvöldið 4. janúar Persónur: fjölskyldan situr með 4 stk ferðatöskur, nýkomin úr flugi frá 2 viknar fríi á Íslandi Ásta Lísa (ÁL): Pabbi, ég þarf að pissa Pabbinn (ég): Ok, klósettið er bara hérna rétt hinu megin við hornið. Taktu í hendina á mér, lestin vaggar svolítið og við gætum dottið. Hérna er þetta. Prófaðu að ýta á takkan, þá opnast hurðin (ÁL ýtir á takkann og við blasir miðaldra feitlaginn maður sem situr á salerninu "í hægðum sínum") Ég: Úps, fyrirgefðu. Vissi ekki að það væri ólæst. (ýti aftur á takkan og loka hurðinni aftur. Það kemur ekki í veg fyrir að 2,27 rúmmetrar af geigvænlega fúlu þarmalofti sleppa fram í ganginn. Við röltum til baka og setjumst í sætin sposk á svip. Allir í vagninum skilja og finna lykt af því sem gerðist. Vandræðaleg brosin og allir reyna að láta sem ekkert hafi gerst. Þá kemur hreinskilni barnsins...) ÁL: Það er kúkafýla (sniff sniff, sogið upp í nefið til að vera viss) ÁL: Pabbi, það er vond lykt.

Laugavegurinn hjólaður - myndir

Þann 16. júlí hjóluðum við fjórir félagarnir (ég. Lalli, Snorri og Tolli) frá Landmannalaugum til Bása í Þórsmörk, sem í daglegu tali kallast Laugarvegurinn. Þetta var í alla staða eftirminnileg og frábær ferð í góðum félagsskap sem hélt vel í þá 14 tíma sem við hjóluðum, teymdum upp brekkur, ísskafla og ár. Ferðalokin í Básum klukkan fjögur um nótt voru kærkomin með Thai hnetusmjörskjúklingarétti og mikið var gott að leggjast til hvílu í tjöldunum. Meira segja myndir en mörg orð...

Laugarvegurinn hjólaður

Þessi hugmynd að taka einn góðann hjólatúr fæddist á vormánuðum hjá meistara Lárusi. Og undirbúningurinn og stemmningsuppbyggingin fór á fullt. Ekkert var sparað til í pökkunarlistum, ferðaáætlunum og gögnum um fyrri slíkar ferðir þar sem hægt er að horfa á myndbönd, sjá gps, lesa lýsingar og sjá myndir. Spennan var orðin þónokkur á sunnudeginum 15 júlí þegar ég var að pakka í bakpoka og elda mat fyrir hópinn inn á milli þess að smyrja nesti fyrir ferðina. Mánudagsmorguninn 16. júlí stóðum við Tolli, Lárus og Snorri klárir á BSÍ eins og hinir túristarnir og gerðum okkur klára í rútuna í Landmannalaugar kl 8. Við komum hjólunum okkar fyrir í einni af tveimur smekkfullu rútunum en tjöld ofl sendum við með annarri rútu upp í Þórsmörk. Eftir nokkuð hoss og hopp vorum við upp í hinum stórbrotnu landmannalaugum þar sem var bara frekar mikið um manninn. Hjólin komu nokkuð heil út úr þessu nema að aftari bremsudiskur hjá mér hafði beyglast en það var lagað fljótt og örugglega. Veðrið var