Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá júlí, 2010

Útilegur Vízindaklúbbsins anno 2010 - myndir

Vízindaklúbburinn átti náðuga endurfundi í sumar og gerði sér dagamun í tvígang úti í náttúrunni með börnum og buru. Alltaf gott veður og stuð. Að venju.

Tilsvör

Tusku-faðir: Baldur Freyr, ekki fara inn á skónum. Við vorum að skúra og það er blautt úti. Bolta-sonur: Æi, ég er kominn inn. Labba bara til baka. Moppan stendur hvort sem er þarna við hliðina. Getið þið ekki bara skúrað aftur? Þið eruð ung og frísk. Snjall drengur. Klykkir út með gullhömrum. Skák og mát. Ég skúra bara aftur.

Á vegum úti - D12: Hamborg

Það er ræs. Hamborg bíður. Stöðumælirinn rennur út kl 10 en snör og samhæfð handtök ferðalanganna gera okkur af stað að rúlla af stað 10:14. Og svo er bara keyrt. Og keyrt, langleiðina til Osnabruck þar sem áð er í hádeginu á McFlugnager með mykjufýluna á vangann á útiborðunum. Bara eins og í sveitinni. Það eru sagðar gátur og brandarar gegnum lofkælda klósetthurðina á McD, Baldur Freyr er í feikna stuði inni á náðhúsinu. Við skiptum um bílstjóra og eftir einungis 1 km lendum við í vel útilagðri umferðarteppu við Onsabruck. Þar silumst við á hraða snigilsins í klukkutíma eða svo. Loks náum við upp eðlilegum umferðarhraða og brunum áfram þjóðveginn uns það er kominn tími á pissustopp og ís. Hér geysar 32 stig í skugga og úrvalið í vegasjoppunni er dálaglegt. Das Trucker sómir sér vel við hlið bláu myndanna í rekkanum. Samhengi? Þrátt fyrir handskrifuð og takmörkuð plögg náum við að ramba inn á úthverfið Barsbuttel og lendum klukkan hálfsjö hjá heiðurshjónunum á Bergredar 11. Hér er

Á vegum úti - D13: Heimferð

Sváfum eins og englar. Dýrindis morguverður er framreiddur framar vonum af heiðurshjónunum á neðri hæðinni. Í borðstofunni gefur að líta afar áhugaverðar ljósmyndir frá 9. áratugnum. Hér hefur verið heimavöllur sonarins. Stoltur benzeigandi með liðað sítt að aftan í bleikum krumpustuttbuxum stillir sér upp við kaupin. Við þökkum fyrir okkur á bágborinni þýsku framreiddri af talvél hópsins, Ástu Jakobs, ásamt táknmáli. Við gerum upp og skorum þónokkur stig við að leiðrétta peningatalninguna sem hallaði á gestgjafana. Brunum af stað kl 11:14. Það er áningarstaður í landamærabúllunni. Hér er enginn smámarkaður og spákaupmennska. Hér er allt til alls, aðallega sykurvörur og fljótandi. Við tölum um kasino á móti súpermarkaðinum ásamt flutningabílaþvottasöð. Við fyllum á belgina á Burger King, utandyra í 30+ hita. Skipt er um bílstjóra og Fjón sýnir skemmtanagildi sitt enn á ný. Ég steinsef yfir eyjuna grænu og vakna ekki fyrr en skammt frá ísstoppi á sjálandi. Við erum á leið heim.

Á vegum úti - D11: Amsterdam 2

Það er bæjartúr í blíðuna eftir ríkulegann morgunverð og við þræðum okkur inn að bæjarmiðjunni með nauðsynlegu kaffihúsastoppi. Túristarnir fara í bátsferð en heimafólkið sitja hjá þetta sinnið og slaka á við síkjabakkann. Við fræðumst um hús og skurði af þrítyngdu segulbandinu. Ásta Lísa er ekki sérlega bergnumin af segulbundnum fróðleiknum og leitar niður á gólfið í leit að skugga. Hún kemur sér vel fyrir á gólfinu við fótskör meistarans og hylur sig peysu móðurinnar og dundar sér við að flétta bönd bakpokans. Við röltum svo sem leið liggur niður á Leidseplein eftir siglinguna og finnum þessa drellifínu wok-frátökubúllu, wok to walk . Afar velútfærð hugmynd þar sem skilvirkni og einfaldleiki afgreiðslu er í fyrirrúmi. Hér er búið að meistra færibandawok þar sem hver hefur sitt sérskipaða hlutfverk (afgreiðsla, samtínari, steikjari). Krakkarnir velja sér þó frekar, ekki að óvörum, McD sem er beint á móti. Í kaupbæti náum við að sjá restina af dansýnsingu á leið í sporvagn 7 á leið h

Á vegum úti - D10: Amsterdam

Það er uppdúkað dýrindis hlaðborð sem tekur á móti okkur um morguninn. Baldri Frey og Ástu Lísu líkar það alls ekki illa, svo ekki sé meira sagt. Ardy kemur svo um 11 og það eru rifjaðir upp gamlir tímar og minningar. Við tökum svo göngu um bæinn og skoðum margar merkilegar verslanir með notað og nýtt frá mörgum heimshornum. Áður en við kveðjum fersum við kaup á Gwotel skónum góðu frá Mongólíu, bæði einstaklega flottir og hlýir skór til styrktar góðu málefni. Grípum svo kaffi og brauðmeti í bílinn til að hafa alla metta á leiðinni til Amsterdam. Ferðin gengur svona stórvel, fyrir utan smá krúsidúllur við að komast út úr Tilburg. Við erum mætt á áætluðum tíma kl 17 og komum húsráðendum í opna skjöldu með slíkri svínslegri stundvísi. Óli og Silla koma skjótt af nærliggjandi kaffihúsi og hjálpa okkur með draslið upp í rjáfur. Þau svífa um með þaulæfð handtök og endurinnrétta íbúðina á núllkommafimm. Hana, þá er búið að koma 5 í viðbót fyrir í litlu og huggulegri íbúðinni með þakglugga o

Á vegum úti - D8: Tilburg 2

Það er morgunmatur og hefðbundin morgunverk. Spjall og slökun. Von er á Machteld og nýsjálenska sjóliðanum Mike, en hann verður frumsýndur tengdaforeldrunum í dag. Þau eru að vonum spennt að hitta þennan sjómann í Breska hernum sem siglir um höfin blá í mánaðarvís. Morgunverðurinn teygir sig yfir í kaffisamsæti. Jelte slær í gegn með kynningu á gömlum spilum og leikjum sem spiluð voru á æskuheimilinu. Kubbaleikurinn skorar mjög hátt og er spilaður aftur og aftur. Skakkaturnsspilið og bjöllupúslið er líka vinsælt. Við tökum göngu í garðinum og nú er hægt að spila fótbolta á afgirtum sparkvelli. Það eru allir með og sviti sprettur af ennum fólks, ójá. Það er rölt heim á leið og ég og systurnar bregðum okkur í kjörbúðina að versla inn fyrir matinn því við vildum launa gestrisnina með því að malla Lasagne fyrir mannskapinn. Það heppnaðist bara nokkuð vel og var Paula tvöfalt ánægð með matinn: fannst þetta rosa gott og svo þurfti hún ekki að elda ... Þá var kominn tími á það sem ungviði

Á vegum úti - D8: Tilburg

Það er vaknað um áttaleytið. Snemma í dag því hreingerningardaman er mætt og það vantar frönskutúlk hið snarasta. Ásta hin fjöltyngna vippar sér upp og bjargar málum. Við röltum út á rólo eftir morgunmat og þegar líða tekur að hádeginu er fyllt á geymana með franskar+ís. Svo er kominn tími á að pakka og kveðja. Tilburg bíður. Bærinn er undirlagður af bæjartívolíinu þannig að það eru smá krókaleiðir að Telefoonstraat. En við erum nokkuð góð að rata þetta í gott sem fyrstu atrennu og rúllum að hliðinu um sex-leytið. Það verða miklir fagnaðarfundir og kynningar á áður ókynntum fjölskyldumeðlimum. Snakk og skraf og krakkarnir fá spil í gjöf sem þau dunda sér með. Ásta Lísa verður nokkuð lunkin með apaspilið. Eftir hressandi Enschiladas er gönguferð um bæinn þar sem hægt er að sjá vinnuflokka setja upp tæki og tjöld sem verða klár fyrir morgundaginn. Ekki laust við að það myndist spenna hjá ungviðinu og Baldur Freyr kortleggur óskalista morgundagsins. Það var því miður ekkert gras í boð

Á vegum úti - D7: Brussel 2

Draumamorgunmatur og algerlega eftir höfði og óskum Baldurs Freys og Jens Inga: nutellabrauð úr tröllaukinni krukku sem var vandlega valin úr ódýru búðinni. Allir mettir og ferðaklárir um hádegisbil en þá tölti hersingin niður í metró, nema Rakel greyið sem var farin í vinnuna að hafa eftirlit með EFTA/EB lagabákninu. Fyrsta stopp var hinn stórmerki kínaverski súpermarkaður sem eftir lýsinum Andrésar átti bara heima í ævintýrum. En það reyndist dagsatt ævintýr og enginn skortur á úrvali og valkostum. Eiginlega áskorun að ná að takmarka sig í innkaupum. Þegar maður hélt að allt væri skoðað kom í ljós að við vorum bara í ytri helmingi búðarinnar. Fórum út klyfjuð af kryddum, tei ofl gúrmei. Við röltum um miðbæinn en fljótlega fór sultarkórinn að verða æ háværari þannig að við förum að tillögu Andrésar inn í þrönga veitingahúsagötu út frá stóratorgi. Þar erum við tilvalin fórnarlömb innkastara túristastaðanna og er lofað gulli og grænum skógum. En þjónninn á erfitt með að fela vonbrig

Á vegum úti - D6: Brussel

Engin miskun, nú þurfti að drífa sig á fætur. Ekkert hangs í rúminu frameftir, það þarf að fæða, klæða, ganga frá og pakka í bílinn. Það er kraftaverki líkast að allt dótið fyrir okkur fimm komist í Nissan skott. Hér kemur áralöng Skodapökkunarþjálfunin sér vel. Klukkan 11:09 er brunað í átt að Dover í lágskýjuðu. Kannski gott að fá smá hvíld frá sólinni svona rétt á meðan við keyrum. Við erum tekin í stutt málamyndatékk hjá tollurunum í Dover. Kannski eru það íslensku númeraplöturnar sem vekja eftirtekt þeirra? Akbraut 158, stigagangur G5 og þilfar 7. Þar erum við samankomin og krakkarnir hlaupa hið snarasta inn í barnahornið þar sem sýndar eru ræmur með sniðuga kettinum honum Tómasi. Börnin hverfa inn í heim teiknimyndanna og veita útsiglingunni enga eftirtekt. Langþráður kaffibolli er næsta mál í fullorðinsdeildinni. Systurnar sveima um völundarhús kaffiteríunnar. Ég fæ félagsskap á meðan af hormónafylltum íþróttaunglingum frá þýskalandi sem stytta mér stundir. Mikið hvað það ge

Á vegum úti - D5: London

Þrátt fyrir göfug fyrirheit var seint skriðið á fætur. Regn næturinnar að klárast um hádegisbilið og sólin skríður fram um elið og við rúllum af stað í áttina að sjálfri London. Mann- og götulífið fer að taka á sig æ áhugaverðari blæ eftir því sem við nálgumst Brixton. Chauser road reynist auðveld viðureignar í bílastæðamálum og áður en við vitum af situm við upp á annarri hæð í þristinum á leið til Trafalquare square. Hér er dágóð mauraþúfa. Express pizza verður fyrsta menningarlega stopp okkar með bókarbúðakaffibaukum í hendi á eftir. Allar orkustöðvar eru nú fullhlaðnar og við ákveðum að taka ferðamannastrætóferð til að sjá nú sem mest á okkar stutta viðverutíma hér í bæ. Og sjá, hér sjáum við öll helstu merkisstaði Lundúna í einni bunu. Stórmerk borg með mikla sögu sem þarfnast þónokkurra heimsókna í viðbót til að sjúga inn allt það sem í boði er. Dagsheimsókn okkar var ágætis smakk. Við rúllum svo til baka í þristinum þegar kvölda tekur. Það eru margar merkisbúllur á leiðinni

Á vegum úti - D4: England, Pooh bridge og Emerson

Frekar döpur frammistaða í fótaferðum hér á bæ. Það hálf varð okkur til láns að ein merkiskonan vakti Ástu til að kveðja. Hún væri á leið til baka til S-Afríku, hefði "gengið frá" í eldhúsinu. Ásta tók svo hálftíma í að hreinsa úr vaksinum og skúra bleytu af gólfum. Það gustar um þessa merku frú búsettri í S-Afríku. Tókum bíltúr í hitanum upp í Emerson og ákváðum að labba svolítið um og borða nestið okkar þarna. Rosalega flott svæði og ég slökkti nánast ekki á myndavélinni þann tíma sem við sóluðum og spókuðum okkur þar. Sáum meðal annars persónulega sýningu á áttuflæði vatns. Ég uppgötva að ég er með opna buxnaklauf þar sem ég sit og maula samlokuna í sólinni. Svona er maður slakur í fríinu. Og þá er það út á ensku sveitavegina aftur. Við tékkum á Bangsimon brúnni með viðkomu í Bangsimon horninu. Voða sæt og flott búð, en erfitt að vera ung sál sem langar í allan heiminn þar inni. Prikaleikurinn virðist bara heppnast vel. Tökum kvöldmatinn á Old mill og skoppum yfir á

Á vegum úti - D3: England, Crowford

Skrölt á fætur um 10 leytið. Bað og badminton á línuna úti í blíðunni. Við ákveðum að skella okkur í smá bíltúr til Crowford. Heldur heitt hjá okkur. Ekki úr vegi að versla eina þykka vetrarúlpu í Marks og Spencer. Annars er fátt annað fýsilegt en að setjast í bláhornið á hinum margverðlauna garði Crowley með kaffi og nesti. Hér verður vendipunktur í tækjasögu unviðisins þegar langþráður draumur Baldurs Freyrs verður að veruleika: hann kaupir sér Nitendo DS fyrir uppsafnaðan sarp sjóð sinn. Pöntunarlistabúðin Argos við hlið garðsins reyndist hafa góð verð á græjunum. Og hamingjan og gleðin leynir sér ekki. Nú geta allir lagst rólegir niður og sólað sig... Hér gengur maður framhjá og prumpar með ógurlegum óhljóðum. Steinkasti frá mér engjast tvær gelgjur í flisskasti. Veit ekki hvort það er þarmaþefurinn, hitinn eða hreinlega menningarlegur margbreytileikinn, en ég er að horfa á þrífættann hund draga hjólastól. Hlýtur að vera nýtt met í minnihlutahóp. Á bakastíminu kaupi ég tvær lyk

Á vegum úti - D2: England, Brighton

Það er rólegur morguninn hjá okkur og við tökum okkur hægt og rólega til fyrir ferð til Brighton. Sultarkvein ser slökkt á McMoney bráðlega eftir komuna til strandbæjarins. Apótek: sólgleraugu og verkjapillur. Þá er hersingin klár á ströndina. Niðurbrennd bryggjan er látin standa ósnortin. Það er ósk um að láta þennan minnisvarða fornfrægra tíma standa og svo er hún víst mikið notuð í kvikmyndum. Steinaströndin er barasta fín og mógrænar öldur svala okkur í hitanum. Baldur Freyr og Ásta Lísa skríkja af fögnuði í ölduganginum. Líka ég. Við hoppum og buslum dágóða stund en leigjum svo stóla. Svona röndótta erki-strandstóla sem krefst ákveðins líkamslags til að forma hann eftir stólnum. Kryppa væri æskilegt lag á stólnum í þessi húsgögn. Hér er dormað og dúllað sér nokkra stund. Tökum svo strandlabb gegnum búllurnar og markaðina á leiðinni heim að bíl. Langvarandi sjokk í bílastæðahúsinu þegar við sjáum reikninginn fyrir þessum ca 5 klst. Tölum ekki meira um það... Sainsburys skreppur

Á vegum úti - D1: England

Fríið að skella á. Mörg smáverkefnin sem þarf að klára áður en hægt er að skella sér í frí. Byrjaði daginn klukkan hálfátta á að klippa runnanna í garðinum, það var víst löngu komið á tíma. Fékk mér kaffibolla og fór svo á vit síðasta vinnudagsins. Sumarringulreið lestarkerfisins hindraði okkur ekki í að tékka inn tímanlega og ná að snæða og kíkja snöggt í leiklandið. Brá þó nett í brún við hlið C24 þegar tilkynningin "closing" mætir okkur, enda 20 mín til brottfarar. En það var allt í góðu og tími fyrir fjölskylduna að taka eina klósettferð í rananum fyrir flugtak. Hefðum betur látið það ógert. Þar geysaði ein sú versta klóakfýla norðan alpafjalla. Baldur Freyr hljóp út hálfgyrtur, gat bara ekki meir. Ég varð eftir inni með Ástu Lísu sem blessunarlega var alstífluð af hori og fann enga lykt. Komst út við illan leik, hálfsortnaði bara fyrir augum af ammoníakstækjunni. Slæmt, mjög slæmt. Og hefur maður þó farið á nokkrar vel súrar tónlistarhátíðir... Gatwick. Ljóshærður en