Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá maí, 2005

Nýjar myndir

Ég fékk ávítur um helgina þar sem tíðni myndainnsetninga hér á vefinn þótti vera heldur döpur. Úr þessu hefur verið bætt og hér má sjá nokkrar myndir frá páskum , dagtúr í Fjölskyldu-og húsdýragarðinn ofl.

Baðherbergisframhaldssagan

Nú er loksins komið að því augnabliki þar sem við Hanna getum loksins sagt með góðri samvisku að endurnýjun baðherbergisins sé lokið ! Og þó fyrr hafi verið ! Þetta hefur alltaf tilhneigingu til að taka lengri tíma en maður hefði nokkurn tíman geta ímyndað sér og svo kemur alltaf eitthvað upp á. Pabbi og Jakob tengdó eiga þó stóran hluta í þessu baðherbergi enda voru þeir okkar helsta stoð og stytta í þessu öllu saman (lesist: var þrælað út).

Árshátíð

Um síðastliðna helgi var haldin árshátíð vinnustaðar míns, Mens Mentis . Þetta var dásamlega vel heppnað og skemmtilegt í alla staði. Þeir sem það kusu og höfðu svigrúm til fóru uppeftir á Hótel Skóga strax á föstudagskvöldinu, fóru í pottinn, gufuna, slökuðu á og tóku upp á mis snilldarlegum samkvæmisleikjum eftir því sem mér skildist. Við Hanna fórum hins vegar af stað á laugardagsmorgninum til að ná í tæka tíð á Byggðasafnið að Skógum þar sem fyrsta formlega samkoman var skipulögð. Súpa og brauð til að fylla magann, óendanlegur fjöldi merkilegra hluta úr fortíðinni á safninu til að metta hugann. Þetta er a.m.k. tveggja daga yfirferð ef vel á að vera. Þórður sjálfur kom og hreif alla vægast sagt með sér, enda mikill hvirfilbylur þar á ferð. Svo var brunað upp á Mýrdalsjökul í bongó blíðu í vélsleðaferð . Útsýnið var stórfenglegt og þetta var frábær stund þarna uppi í frostinu. Að sjálfsögðu náðum við Hanna þeim merka árangri að velta vélsleðanum með þeim afleiðingum að hann vildi