Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur frá nóvember, 2006

Gestir, Helsinki, Dublin

Það er komið að smá samantekt síðustu vikna. Gestastraumur, Dublinferð og Helsinkiferð eru kannski svona efst í huga... Gestir Það hafa ýmsir lagt leið sína til Kaupmannahafnar síðustu vikurnar og við verið svo heppin að ná að hitta þau. Bogi og Iða komu í Nóvemberbyrjun og náðum við ansi skemmtilegri kvöldstund á kaffihúsi á Istegade. Bogi kom svo í mat til okkar upp í Sölleröd og átti það nú heldur betur inni síðan hann hjálpaði mér að flytja inn. J akob og Oddný voru hérna um síðustu helgi og áttum við stórgóðan dag á laugardaginn í jólatívolíinu. Þau voru svo vart farin á sunnudeginum þegar Hannes hringdi úr rigningunni niðri í Kaupmannahöfn, með Guðrúnu upp á arminn. Við hittumst í gærkvöldi og fórum út að borða. Halla og Bjössi slógust svo í hópinn og við áttum alveg ljómandi kvöldstund. Dublin Dagana 12.-16. Nóvember fór ég til Dublin á námskeið á vegum vinnunnar. Það var ljómandi góð reisa, gagnlegt námskeið, skemmtilegt fólk og ekki síst dásamlegur bjór! Meira um það síðar ás