Fara í aðalinnihald

Erfinginn kominn í heiminn.

Danska hirðin sagði:

"Ekki gera þetta kæri vinur": sagði ég við BFF nú áðan og svarið kom á óvart: "ég er ekki vinur, ég er stjórnmálamaður". Þegar ég hugsa nánar út í það, þá hitti hann svo fullkomlega naglann á höfuðið.

 


Stjórnmálamenn vilja nefnilega að aðrir haldi hann sé vinur allra en í raun er hann bara stjórnmálamaður. Eða hvað??

Ég fór í klippingu og litun í morgun. Hjólaði til Lyngby um hálfátta, í þessu líka ljómandi fína veðri (sem er btw. orðið enn betra núna, hún Nellý á neðri hæðinni situr úti í garðinum sínum í sólbaði ;-) ) og fékk glænýja klippingu og nýjan lit. Alltaf gaman og alltaf e-ð til að venjast. Ég er svo hrikalega vanaföst á þetta blessaða hár. Ég er svo búin að agitera fyrir því að fá að klippa Fuz í kvöld en fékk mjög svo skeptískan svip sem svar. Ég er alveg steinhissa!! Við sjáum til hvort ég hafi ekki einhver tök í honum.

Skrapp nú líka aðeins í H&M og tapaði mér aðeins. Maður verður nú stundum að standa undir "konur & verslanir" goðsögninni. Ekki satt?

En þá að máli málanna! Frederik og Mary eignuðust son í nótt, sonurinn mun verða konungur Danaveldis þegar Frederik lýkur sinni skyldu. Ég óska þeim innilega til hamingju. En um leið þakka ég guði fyrir að fá að eiga mitt einkalíf í friði (eða svo gott sem) því að engin stund er eins heilög og fæðing barnanna, og heilagar stundir vill maður fá að eiga fyrir sig sjálfan.

Jæja krúttin mín, ég ætla að kveðja. Við erum að bíða eftir því að prinsessan vakni svo að við getum skellt okkur í hjólatúr í góða veðrinu ( já var ég búin að nefna það að hér er gott veður??)

Eitt svona í lokin, Finnur var að velta fyrir sér hvort Danir ættu ekki að fara að endurskoða fánann sinn. Ekki er það í tengslum við hinn nýja erfingja heldur allt annað. Málið er að hér er svo mikill hundaskítur, og fólk virðist oft hálflélegt að hreinsa hann upp, svo að hugmynd Finns er að skella hundaskítnum inn í miðjan fána, sem sérstökum einkennismerki Danaveldis. Góð hugmynd??

Njótið helgarinnar hvar sem er í heiminum.
Hanna.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Í faðmi fjalla og stórbrotinnar náttúru

Við erum svo virkilega að njóta okkar hérna á Íslandinu og höfum farið út í náttúruna og hitt vini og vandamenn á förnum vegi. Krakkarnir príluðu með okkur eitt kvöldið upp á Úlfarsfellið sem blasir við út um stofugluggann hjá mömmu og var það hressilegur túr fyrir sál og líkama. Svo er búið að taka túr um uppsveitir Suðurlands og heimsækja Sólheima sem eiga alltaf stóran stað í hjörtum okkar. Hanna fór með krakkana í sveitina til Guðnýar og nutu þau lífsins og náttúrunnar með ferðum með ströndinni á undir rótum Snæfellsjökuls. Og auðvitað varð að kanna stöðuna á toppi jökulsins líka með hjálp snjótroðara og útsýnið var víst stórfenglegt af toppinum þar. Á meðan Hanna og gríslingarnir nutu lífsins í Syðri-Knarrartungu þá fór ég með Lalla, Snorra og Tolla. Svo erum við búin að prófa þó nokkrar sundlaugar og fara í eitt gott brúðkaup úti í guðsgrænni náttúrunni.

Laugarvegurinn hjólaður

Þessi hugmynd að taka einn góðann hjólatúr fæddist á vormánuðum hjá meistara Lárusi. Og undirbúningurinn og stemmningsuppbyggingin fór á fullt. Ekkert var sparað til í pökkunarlistum, ferðaáætlunum og gögnum um fyrri slíkar ferðir þar sem hægt er að horfa á myndbönd, sjá gps, lesa lýsingar og sjá myndir. Spennan var orðin þónokkur á sunnudeginum 15 júlí þegar ég var að pakka í bakpoka og elda mat fyrir hópinn inn á milli þess að smyrja nesti fyrir ferðina. Mánudagsmorguninn 16. júlí stóðum við Tolli, Lárus og Snorri klárir á BSÍ eins og hinir túristarnir og gerðum okkur klára í rútuna í Landmannalaugar kl 8. Við komum hjólunum okkar fyrir í einni af tveimur smekkfullu rútunum en tjöld ofl sendum við með annarri rútu upp í Þórsmörk. Eftir nokkuð hoss og hopp vorum við upp í hinum stórbrotnu landmannalaugum þar sem var bara frekar mikið um manninn. Hjólin komu nokkuð heil út úr þessu nema að aftari bremsudiskur hjá mér hafði beyglast en það var lagað fljótt og örugglega. Veðrið var...

Draumaferðin - komið á áfangastað

Jóladagsmorgun 2011 og það er ræs klukkan 4 að morgni eftir örfáar svefnstundirnar. Það er rok og rigning á E47 á leið út á Kastrup flugvöll, en það á eftir að breytast... Fjölskyldan dormar og sefur til skiptis á milli sögubrota frásagnaglaða aðstoðarflugstjórans um ferðalög danskra víkinga suður eftir álfunni. Fróðlegt, en ég vildi nú samt heldur sofa eins og lofað var eftir mat og fríhafnarprang. Það eru svo nokkur viðbrigði að koma í 20 gráðu hitann og hrjóstrugt eldfjallalandslag þar sem regn er greinilega ekki oft á dagskránni. Eftir 45 mínútna rútuferðalag í gegnum landslag sem líkist Reykjanesinu allmikið komum við á áfangastað, Las Playitas ! Við erum rösk að tékka okkur inn og pakka upp og þá er bara að taka út svæðið og skoða það sem í boði er næstu vikuna. Það eru lögð drög að dagskrá næstu daga og heimilisfaðirinn skráir sig til leiks í 25 km fjallahjólatúr næsta dag. Sundlaugin og krakkaklúbburinn tekinn út og allt fær bestu einkunn. Helstu nauðsynjar bornar í hús úr ...