Færslur

Rokkað í Køben

Snigillinn sagði: Enn eitt kvöldið fékk ég bæjarleyfi og því var haldið niður í miðbæ Kaupmannahafnar. Ég sagði ykkur frá því um daginn að ég myndi fara á tónleika með Anne Linnet í nóvember og þeir voru einmitt á laugardagskvöldið. Íris og Magga voru hér hjá okkur og við nutum samvista við þær á milli þess sem þær sóttu tónleikastaði heim. Takk kærlega fyrir komuna, stúlkur. Við vonum að heimferðin hafi gengið vel! En aftur að laugardagskvöldinu .....   sem var frábært. Anne Linnet er hreinlega frábær tónlistarmaður. Krafturinn í henni og frá er ótrúlegur og því voru tónleikarnir heilmikil upplifun. Það er svo gaman að heyra Anne segja frá t.d. skýjum, hegðun fugla, upplifun af vatni og afbrýðissemi á hátt sem fær mann til að nánast upplifa lýsinguna hennar. Anne hefur víst ekki farið ávallt troðnar slóðir í lífinu, og þar af leiðandi er tónlistin hennar undir miklum áhrifum af því. Platan "Her hos mig" sem kom út í október fer með mann í gegnum heila sögu sem hún skýrir svo...

Svipmyndir

Mynd
Nokkrar nýjar myndir eru komnar í albúmið. Þar á meðal frá framkvæmdum, Raadvaad deginum ofl.

Andleysi

Snigillinn sagði: Skrýtið þetta andleysi sem hellist oft yfir mig þegar ég er sest við tölvuna og ætla að skrifa e-ð. Eins og heilastarfsemin leggist af. Flakka þá á milli síða og geri í raun ekki neitt. En nú er kominn tími til að skrifa því að langt er síðan síðast.   Heil vika ... og þá er bara að rifja upp. Valla og Sæmi komu á miðvikudaginn sl. Og voru fram á laugardag. Ljúft það og börnin sérlega hrifin. Við bjuggumst við að ÁLF myndi vera e-ð feimin við þau en ekki aldeilis. Þegar ég og Valla sóttum hana í Legestuen á fimmtudaginn var alveg spurning hvort ÁLF vildi meira til mín en ömmu sinnar. Gott mál! Við fórum í Experimentarium á fimmtudaginn og í Tivoli á föstudeginum og skemmtum okkur vel þrátt fyrir að frostið biti ansi skart í kinn. Á laugardagskvöldið fór ég í bæinn, fékk s.s. bæjarleyfi hjá manninum en þið sem hann þekkið þá gerist það ekki oft ;-) Ég fór og hitti Jenný, Silju, Berglindi og Ellen. Seinna komu svo Davíð og Sanne. Við borðuðum á Ankara sem er tyrkneskur ...

Október 2005, Baldur Freyr

Mynd
Margt gerðist hjá Baldri í október. Hann byrjaði í nýjum leikskóla, fór að kúka í klósett, fór á kanó í fyrsta skipti ofl... Byrjar í Engevang Syd (leik)skólanum þann 3. október. Gengur nokkuð vel í aðlögunni. Klárar fyrstu vikuna ágætlega með smá niðursveiflu eftir hádegi á föstudeginum, þegar þrekið hefur sennilega verið búið. Er annars ánægður með að vera með öðrum krökkum að leika. Einn íslenskur strákur er líka þarna: Garðar (Gæi). Morgnarnir eru oftast erfiðir, lítill í sér og grætur. Hundaleikur tekinn í gagnið: binda hundinn (pabba/mömmu) og skilja eftir fastan við kommóðu eða önnur húsgögn. Er hrifinn af köttum. Latibær uppgötvast á Norskri stöð (tv 2). Mjög vinsælt og tekið upp á spólu. Farinn að horfa á meiri flóru af teiknimyndum og barnaefni, enda úrvalið mjög mikið í stöðvaflórunni. Fer að sofaupp í hjá foreldrunum. "Þú átt að sofa bara í þínu rúmi", "Nei, stundum þarf að sofa í þessu rúmi. Stundum er það bara svoleiðis.". Mát. Frasar: "Þannig er ...

Október 2005, Ásta Lísa

Mynd
Í október varð Ásta Lísa eins árs hvorki meira né minna. Fær pláss hjá fyrstu dagmömmu sinni ofl... Gangbrautarljós. Finnst svo gaman að fá að ýta á takkana. Byrjar að skríkja um leið og götuljós eru í augnsýn. Finnst líka gaman að ýta á takkana í lyftunum. Stingur sjálf með gaffli í matarbitana eftir stutta sýnikennslu. Getur sjálf! Voða hrifin af því að leika sér með plastdósirnar marglitu sem má raða ofan á og inn í hvor aðra. Farin að fara aðeins upp á hnén. Frekar löt við að standa í fæturnar, setur þær frekar í setstöðu þegar prófa á að tosa upp og láta standa. Tennurnar ryðjast fram. Fjögur stykki jaxlar koma upp á yfirborðið. Mikill pirringur vegna þess. Augntönn vinstra megin uppi kemur líka í ljós. Mikið að gera á gólfinu og oft verið að færa hluti fram og til baka, inn og út úr skúffum. Setja dót í uppþvottavélina og inn í skápa. Leikurinn gjörðusvovel-takk-gjörðusvovel-takk-.... osfrv voða vinsæll. Setur Fisher-Price kalla sjálf í stóla og kubbar saman Lego kubbum (stórum)....

Hæ hó ég hlakka til

Herforinginn sagði: þegar þessu veikindastússi verður lokið. Tengdó að koma á morgun og Finnur lagstur í bælið.   Það er ekki alveg rétti tíminn fyrir veikindi, en hvenær er það svo sem? Ég vona bara að þetta verði ekki í langan tíma, vinsamlega sendið góða straum! Enn og aftur datt mér líkingin við herforingjann í hug. Ég held að maður sé nokkuð gott efni í herforingja miðað við æfinguna á börnunum, sérstaklega á dögum sem þessum þar sem allt þarf að ganga nokkuð smurt. Ásta hefur sent frá sér sitt fyrsta bréf frá Marokkó og lætur mjög vel af sér. Ég býð spennt eftir því að fá smámunalegar lýsingar af öllu, alveg væri ég til í að vera að skoða svona nýjan heim. Svo að nú er ekkert annað en að drífa sig í að læra frönsku og fara! Ég sendi mínar hlýjustu kveðjur niðureftir - stór koss. Það er orðið ansi napurt og í dag hefur blásið þokkalega. Í kvöld er hinsvegar fullt tungl, eins og hjá ykkur hinum líka ;-) og hér er heiðskírt og þvílík fegurð. Ég verð alltaf jafnagndofa yfir náttúrunn...

Ungur piltur

Elsku Harpa og Torfi Til hamingju með prinsinn ykkar. Ég hlakka til að sjá ykkur öll, vona bara að það líði ekki ár og öld þar til það verður. Gangi ykkur vel í nýju hlutverkunum!! Ástarkveðjur Hanna