Færslur

Samtal í Munaðarnesi

Á róló að morgni dags: "Ég fæ bílpróf þegar ég verð tólf ára". Nú? "Já, maður verður samt að vera búinn að æfa sig svolitið fyrst". Já, er það ekki? "Ég ætla að verða kraftakarl". Já og lyfta steinum upp á tunnur og svona, ekki satt? "Jú, en ég ætla alls ekki að verða íþróttamaður, heldur vísindamaður sem gerir heiminum gott!". Já, hvað ætlar þú að gera til að hjálpa heiminum? "Sko, það er svona vél sem er sett ofan í sjóinn. Svo koma stóru öldurnar og fara inn í hana". Einmitt, hvað verður svo um öldurnar? "Þær verða bara að litum öldum og koma út. Þannig verður ekkert hættulegt þegar stórar öldur koma upp að landinu." Já, þetta er nú sniðug vél. "Já, og svo er það önnur vél sem flýgur. Þegar það er eldgos í jökli þá kemur hún og sýgur það upp og fer svo og setur það aftur ofan í og stoppar gosið. Þannig verður ekki lengur hættulegt fyrir fólkið út af flóðum og svona". Menn þurfa greinilega ekki að vera aldnir að ár...

Flutningar

Mynd
Nú skal það gert heyrinkunnugt að við Hanna erum að flytja til Danmerkur með grislingana tvo. Þannig er mál með vexti að ég hef fengið vinnu hjá Microsoft, Vedbæk nánar tiltekið og mun byrja þar um miðjan ágúst. Já það er margt að gerast þessa dagana, Baldur bróðir flytur í Hafnarfjörðinn um mánaðarmótin. Þau verða á Hringbrautinni sem er bara rétt hjá Suðurbrautinni, verst að við skulum vera flytja burt...

Gifting

Það er ekki oft sem maður er gerður fullkomlega hlessa og kjaftstopp. En það tókst Baldri og Imbu sunnudaginn 29. maí þegar þau voru að skíra hana Emmu Ósk. Þannig var að þegar Pétur hafði klárað að skíra og hamingjuóskirnar höfðu farið hringinn, var lítið fararsnið á honum úr holinu við skírnarfontinn. Baldur bróðir var eitthvað svo þvalur á höndunum og ekki laust við að hann væri stressaður þegar hann sagði: "Heyrðu Finnur, talaðu aðeins við mig." Inn í svefnherbergi bak við luktar dyrnar teygði Baldur sig í hringaöskjur upp í hillu og spurði hvort ég væri til í að vera svaramaður ef þau Imba létu pússa sig saman. Já auðvitað. Ha núna? Já, núna. Svo hófst næsta athöfn, öllum að óvörum, og fyrr en varir voru Baldur og Imba gift! Það tók nú nokkra dagana að meðtaka þetta, en ég er rosa ánægður með þetta hjá þeim. Til hamingju!

Undir kalstjörnu

Undir kalstjörnu, Sigurð Á Magnússon. 1979. Eftir langan dvala í bókarlestri vegna mikilla anna og stórviðburða, þá fór ég í hálfrökkrinu í gærkvöldi upp í skáp og greip eina skrudduna úr Gummahillunni. Það reyndist vera Undir kalstjörnu eftir Sigurð Á Magnússon. Hann fékk Bókmenntaverðlaun Norðulandaráðs 1980, árið eftir að hún kom út. Ég náði nú aldrei að klára þessa held ég. Það fór allt á fullt í að klára undirbúning Danmerkurflutninganna. Svo skilaði ég bókakassanum til eiganda síns, Gumma þ.a. að bókin var ekki lengur í mínum höndum.

Nýjar myndir

Mynd
Ég fékk ávítur um helgina þar sem tíðni myndainnsetninga hér á vefinn þótti vera heldur döpur. Úr þessu hefur verið bætt og hér má sjá nokkrar myndir frá páskum , dagtúr í Fjölskyldu-og húsdýragarðinn ofl.

Baðherbergisframhaldssagan

Nú er loksins komið að því augnabliki þar sem við Hanna getum loksins sagt með góðri samvisku að endurnýjun baðherbergisins sé lokið ! Og þó fyrr hafi verið ! Þetta hefur alltaf tilhneigingu til að taka lengri tíma en maður hefði nokkurn tíman geta ímyndað sér og svo kemur alltaf eitthvað upp á. Pabbi og Jakob tengdó eiga þó stóran hluta í þessu baðherbergi enda voru þeir okkar helsta stoð og stytta í þessu öllu saman (lesist: var þrælað út).

Árshátíð

Mynd
Um síðastliðna helgi var haldin árshátíð vinnustaðar míns, Mens Mentis . Þetta var dásamlega vel heppnað og skemmtilegt í alla staði. Þeir sem það kusu og höfðu svigrúm til fóru uppeftir á Hótel Skóga strax á föstudagskvöldinu, fóru í pottinn, gufuna, slökuðu á og tóku upp á mis snilldarlegum samkvæmisleikjum eftir því sem mér skildist. Við Hanna fórum hins vegar af stað á laugardagsmorgninum til að ná í tæka tíð á Byggðasafnið að Skógum þar sem fyrsta formlega samkoman var skipulögð. Súpa og brauð til að fylla magann, óendanlegur fjöldi merkilegra hluta úr fortíðinni á safninu til að metta hugann. Þetta er a.m.k. tveggja daga yfirferð ef vel á að vera. Þórður sjálfur kom og hreif alla vægast sagt með sér, enda mikill hvirfilbylur þar á ferð. Svo var brunað upp á Mýrdalsjökul í bongó blíðu í vélsleðaferð . Útsýnið var stórfenglegt og þetta var frábær stund þarna uppi í frostinu. Að sjálfsögðu náðum við Hanna þeim merka árangri að velta vélsleðanum með þeim afleiðingum að hann vildi...