Fara í aðalinnihald

Færslur

Með kúbein í körfu

Við fórum í lítinn hjólatúr áðan eftir matinn. Tókum nágranna og bekkjafélagann Alfreð með. Hann hafði með sér forlátt mini-kúbein. Mjög gerðarlegt og virtist geta þjónað fullum tilgangi sínum, að minnsta kosti þá fengu nokkrir morknir trjástofnar að kenna á því af fullum krafti. Hann sagði að það væri ansi margt hægt að kaupa í grænu skemmunni niður í Kristjaníu þar sem pabbi hans býr. Þar var líka hægt að kaupa dúkkur, sagði hann við Baldur. Svona stórar uppblásnar dúkkur fyrir stráka "som synest det er sjovt at bolle" . Geri ráð fyrir að valið hafi fremur hallast að kúbeininu þann daginn hjá pabbanum... Eftir að við sáum litla svarta eðlu voru allir sáttir og klárir til að koma heim í háttinn. Ég fékk heiðurinn að ferja kúbeinið heim í körfunni minni. Í huga mér formuðust óteljandi hugsanir og möguleikar tengdu svörtu verkfærinu sem glitraði svo bjart í kvöldsólinni.

Egyptaland 2010 - Dagur3

Dagur 3 í paradísinni rís sem aðrir morgnar hingað til, heiðskírt og sól. Við fáum okkur morgunverð svona með seinni skipunum en trítlum svon niður að laugarbakkanum þar sem við buslum og æfum okkur með nýju snorklgræjunum og Ásta Lísa svamlar um í nýja flotvestinu sínu. Við verslum okkur tvær dagsferðir sem við byrjum strax að hlakka til: bátsferð og jeppasafarí með meiru. Við förum út og bryggju og snorklum öll saman svo er tími fyrir að taka 3ju umferð á ísbarnum. Eftir matinn kíkjum við í barnaklúbbinn í stutta stund. Þar er mestmegnis töluð rússneska en samt hægt að gera sig skiljanleg með litum, fótboltaspili og táknmáli. Tókum svo einn síðdegislabbitúr upp á markaðinn í grenndinni. Snorklbúllan frá deginum áður reyndist bara vera rétt í forgarði markaðsþyrpingarinnar, þ.e. í forgarði helvítis. Hér þarf sterkt hjarta og sál til að verjast og hafa roð við kappsömum sölumönnum góss og glingurs. Aðferðarfræðin er þaulskipulögð og þaulæfð. Það er einn innkastari hinum meginn búða...

Egyptaland 2010 - Dagur2

Annar mars og við vöknum á nýjum stað. Sjáum nú öll herlegheitin í björtu, þvílik sýn yfir spegilslétt rauðahafið í heiðskírri sólarsælunni. Það er svo morgunverðarhlaðborð að lokinni sólkremssmurningu og hitabylgjan tekur á móti okkur upp tröppurnar. Svolítið annað en slydduélin í gær í Kaupmannahöfn, ha? Það er enginn skortur á valmöguleikum á hlaðborðinu en ungviðið sigtar skjótt úr kókó-kúlur og grandskoðar speglaturna umkringda og fyllta af alls kyns kökum og kruðeríi. Svona ef maður væri ekki alveg búinn að fylla síðustu sentimetra vélindans. Ekki hægt að segja annað að veitingunum séu gerð góð skil. Þá er upplýsingafundur með leiðsögukonunum sem reynist mjög nytsamlegur og fullur af góðum ráðum og upplýsingum. Krakkarnir eru ekki á sama máli. Drepleiðist. Það lagast þegar við komum niður að sundlauginni þar sem við eigum góðar stundir við busl, leik og slökun. Við erum augljóslega nýkomin, enda svífa meðhöndlana- og ferðasöludrengirnir á okkur með syngjandi söluræðunni: ...

Egyptaland 2010 - myndir 2

Næsti skammtur af myndum frá Egyptalandsreisunni miklu. Hér fer fjölskyldan meðal annars í jeppasafarí, reiðtúr á kameldýrum og snorklar við Blue Hole í Dahab. Önnur eins keyrsla og meðferð á Toyota Landcruiser hefur vart sést...

Egyptaland 2010 - Dagur1

Mánudagsmorgunn 1. mars og það er borðaður morgunmatur og smurðir matpakkar. Það voru slydduél á leiðinn á hraðbrautinni og við höfðum pantað okkur bílastæði á hjara veraldar. Allt innritunarferlið gekk vel og við erum komin inn fyrir og sveimum á fríhafnarsvæðinu eftir hádegismatinn. Spennan er mikil og tíminn drepinn í raftækjabúð við æsispennandi MarioCart wii spil. Svo mikil einbeiting að það er bara kominn aðkallandi tími á nr #2 hjá Baldri Frey þannig að strikið er tekið með mjög áhugaverðum fótaburði. En það er aðeins og seint og flogið er nærbuxnalaus til Egyptalands. Það er mjög erfitt að bíða eftir að vélin lendir, spurt er á 11 mín frest og mótmæt harðlega ef hinn liðni tími er ekki amk 20 mín meira en þegar síðast var spurt. Við lendum loksins í 20 C hita kl 21 að staðartíma, á fullu tungli. Farangurinn er fljótfenginn og ljóshærða, litla, bleikklædda dóttir okkar vekur ómælda athygli heimanmanna sem vilja allir heilsa upp á, klappa á kollinn og spyrja "hey, what´s y...

Egyptaland 2010 - fyrsti skammtur

Litla fjölskyldan lagði land undir fót dagana 1.-8. mars og upplifði langþráða draumaferð. Hér er fyrsti skammtur af myndunum, fleiri myndir og frásagnir koma síðar....

Það er hugurinn sem gildir

Um síðustu helgi vorum við fjölskyldan að þvælast upp í IKEA í Gentofte. Þegar við göngum út úr fokheldum innganginum og út í snjókrapann stendur þar heimilislaus maður að selja Hus forbi. Og hann var alveg orginal; rámur, skakkur, hertur og vegalaus Klaus. Auðvitað keyptum við blað af honum og Baldur Freyr spurði mikið út í heimilisleysið. Af hverju yrði maður heimilislaus og hvernig það kæmi til. Við foreldrarnir lögðum til útlistanir á því hvaða hremmingar gætu leitt til þessara örlaga. Hmmm. Baldur Freyr var hugsi og fannst þetta augljóslega vond örlög. "Heyrðu mamma og pabbi þegar ég verð ríkur, svona eins og onkel Joakim, þá ætla ég að gefa þeim heimilislausu svona eins og .. og eina milljón eða eitthvað svoleiðis. Þá þurfa þeir ekki að hafa áhyggur." Æi, en fallega hugsað hjá þér Baldur. "Já, og svo þarf maður ekki að borga skatt." Hlátur. Mát. Hvaðan kemur þessi vísidómur? Jú, við búum í skattpíndasta ríki jarðar. Þetta hlýtur bara að leka inn með blandaða s...