Færslur

Laugavegurinn hjólaður - myndir

Mynd
Þann 16. júlí hjóluðum við fjórir félagarnir (ég. Lalli, Snorri og Tolli) frá Landmannalaugum til Bása í Þórsmörk, sem í daglegu tali kallast Laugarvegurinn. Þetta var í alla staða eftirminnileg og frábær ferð í góðum félagsskap sem hélt vel í þá 14 tíma sem við hjóluðum, teymdum upp brekkur, ísskafla og ár. Ferðalokin í Básum klukkan fjögur um nótt voru kærkomin með Thai hnetusmjörskjúklingarétti og mikið var gott að leggjast til hvílu í tjöldunum. Meira segja myndir en mörg orð...

Laugarvegurinn hjólaður

Mynd
Þessi hugmynd að taka einn góðann hjólatúr fæddist á vormánuðum hjá meistara Lárusi. Og undirbúningurinn og stemmningsuppbyggingin fór á fullt. Ekkert var sparað til í pökkunarlistum, ferðaáætlunum og gögnum um fyrri slíkar ferðir þar sem hægt er að horfa á myndbönd, sjá gps, lesa lýsingar og sjá myndir. Spennan var orðin þónokkur á sunnudeginum 15 júlí þegar ég var að pakka í bakpoka og elda mat fyrir hópinn inn á milli þess að smyrja nesti fyrir ferðina. Mánudagsmorguninn 16. júlí stóðum við Tolli, Lárus og Snorri klárir á BSÍ eins og hinir túristarnir og gerðum okkur klára í rútuna í Landmannalaugar kl 8. Við komum hjólunum okkar fyrir í einni af tveimur smekkfullu rútunum en tjöld ofl sendum við með annarri rútu upp í Þórsmörk. Eftir nokkuð hoss og hopp vorum við upp í hinum stórbrotnu landmannalaugum þar sem var bara frekar mikið um manninn. Hjólin komu nokkuð heil út úr þessu nema að aftari bremsudiskur hjá mér hafði beyglast en það var lagað fljótt og örugglega. Veðrið var...

Í faðmi fjalla og stórbrotinnar náttúru

Við erum svo virkilega að njóta okkar hérna á Íslandinu og höfum farið út í náttúruna og hitt vini og vandamenn á förnum vegi. Krakkarnir príluðu með okkur eitt kvöldið upp á Úlfarsfellið sem blasir við út um stofugluggann hjá mömmu og var það hressilegur túr fyrir sál og líkama. Svo er búið að taka túr um uppsveitir Suðurlands og heimsækja Sólheima sem eiga alltaf stóran stað í hjörtum okkar. Hanna fór með krakkana í sveitina til Guðnýar og nutu þau lífsins og náttúrunnar með ferðum með ströndinni á undir rótum Snæfellsjökuls. Og auðvitað varð að kanna stöðuna á toppi jökulsins líka með hjálp snjótroðara og útsýnið var víst stórfenglegt af toppinum þar. Á meðan Hanna og gríslingarnir nutu lífsins í Syðri-Knarrartungu þá fór ég með Lalla, Snorra og Tolla. Svo erum við búin að prófa þó nokkrar sundlaugar og fara í eitt gott brúðkaup úti í guðsgrænni náttúrunni.

Draumaferð til Santorini

Mynd
Ahh, ljúft var það. Vika á Santorini í sæluferð með frúnni í sól, strandarlífi og upplifunum. Myndir segja meira en mörg orð:   Útsýni frá Fira 0 1 0 0

Draumaferðin - ævintýri og ferðalok

Við fjölskyldan vorum virkilega farin að finna okkur heimakomin á PlayItas. Hvað annað er hægt í stöðugu 20+ og sól með endalausum möguleikum að fara út og leika sér utan dyra og fá smá svita á ennið. Ég var farinn að fá löngun í annan fjallahjólatúr og vildi athuga með föstudagstúrinn. Í pöntunarafgreiðslunni var augljóst að fólk var búið að átta sig og taka þjóðverjann á þetta og mæta eldsnemma og panta hjól, ferðir og tíma fram í vikuna. Það var bara ekkert laust fyrr en töluvert eftir heimferð. En hvað með götuhjól? Jú, það var eitt slíkt á gamlárs sem var laust. Tók það og var spenntur að prufa. Ég sótti hjólið að morgni gamlársdag í fullum hjólagallaskrúða með pedala, kamelpoka og orkusnakk. Skoðaði leiðir í boði (40, 60 og 80 km) og að tillögu afgreiðslumannsins í hjólaleigunni setti ég markið á 40 km svona til að byrja með. Það tók smá tíma að venjast fisléttu hjólinu og mjóum dekkjum þar sem fjöðrun var nánast engin og allar misfellur og holur fundust vel. En rennslið var ...

Draumaferðin - komin í gang

Nú þegar búið er að stúdera og samræma atburðardagskrárnar fer allt í gang. Ég byrja annan í jólum á 25km fjallahjólatúr með góðum hópi og það verður að segjast að landslagið er nokkuð frábrugðið. Í stað drullu og sleipra rótarbunka þarf að venjast lausamöl (tækla eins og drullu) og stórgrýttar holur. Einnig hjóluðum við kafla þar sem malarvegurinn minnti glettilega á vestfirskt þvottabretti þar sem demparar framan og aftan fengu heldur betur að vinna fyrir hverri rifflu. Fjölskyldan leigir sér tennisspaða og völl og spreytir sig í klukkutíma í sólinni. Hanna er dugleg að hlaupa og prófa ýmislegt svo sem Zumba, Funkdans, afródans og fullorðins sundæfingu sem var nokkuð krefjandi. Þriðja í jólum leigjum við okkur öll fjallahjól og tökum túr inn til næsta bæjar, Gran Tarjal, þar sem við spókum okkur og snæðum dýrindis pizzu og guðdómlegan ís við ströndina. Svo er það bara að skella sér í krakkaklúbbinn eða busla í lauginni þess á milli. Nú eða skella sér í ræktina, prófa bodytoning (ha...

Draumaferðin - komið á áfangastað

Jóladagsmorgun 2011 og það er ræs klukkan 4 að morgni eftir örfáar svefnstundirnar. Það er rok og rigning á E47 á leið út á Kastrup flugvöll, en það á eftir að breytast... Fjölskyldan dormar og sefur til skiptis á milli sögubrota frásagnaglaða aðstoðarflugstjórans um ferðalög danskra víkinga suður eftir álfunni. Fróðlegt, en ég vildi nú samt heldur sofa eins og lofað var eftir mat og fríhafnarprang. Það eru svo nokkur viðbrigði að koma í 20 gráðu hitann og hrjóstrugt eldfjallalandslag þar sem regn er greinilega ekki oft á dagskránni. Eftir 45 mínútna rútuferðalag í gegnum landslag sem líkist Reykjanesinu allmikið komum við á áfangastað, Las Playitas ! Við erum rösk að tékka okkur inn og pakka upp og þá er bara að taka út svæðið og skoða það sem í boði er næstu vikuna. Það eru lögð drög að dagskrá næstu daga og heimilisfaðirinn skráir sig til leiks í 25 km fjallahjólatúr næsta dag. Sundlaugin og krakkaklúbburinn tekinn út og allt fær bestu einkunn. Helstu nauðsynjar bornar í hús úr ...

Áskorunin

Mynd
Stundum verður maður bara að láta slag standa og oflofa sér. Það gerði ég hér í ágúst byrjun þegar Lalli og Biggi  spurðu hvort ég væri til í að vera 3. maður í liði í 12 tíma fjallahjólakeppni . Ekki hafði ég farið mjög oft út í alvöru túra hér síðasta árið, nokkra einn og með Lalla og þar með upp talið. En stundum á maður bara að kýla á það. Og það gerðum við. Stuttu síðar í vinnunni spurði Marc mig hvort ég væri maður í að koma um borð í 5 manna lið MS á laugardaginn. Ég sagðist ekki geta það, væri að fara að taka þátt í keppni. Sem reyndist vera sú sama, Atea12. Hvað eruð þið margir? Öh, við erum 3ja manna lið. Núúú, ahah. Þá fékk ég á tilfinninguna að þetta yrði erfitt. Sú tilfinning kom aftur þegar Hans spurði um það sama og ég fékk aftur svona "einmitt, aha" þegar ég sagði að við værum 3. Við könnuðum aðstæður og hjóluðum upp að svæðinu þann 24. ágúst og tókum smá hring. Stemningin var komin af stað þá þegar og minnkaði ekki við að sjá svæðið. Lokaundirbúningur fór...

Egtved útilega

Mynd
 Fjölskyldan brá sér í tjaldútilegu í kringum afmæli Baldurs Freys. Og í þetta skiptið var leigt hjólhýsi sem var algert undur og æði. Rigning var þegar við komum en svo brast á rjómablíða sem við nutum til fulls í Legolandi, Givskud Zoo og á tjaldsvæðinu við leik og slökun.

Kíkt á Oddný Birnu

Mynd
Hér í maíbyrjun skelltum við okkur til Gautaborgar til að heilsa upp á nýstækkuðu fjölskylduna. Þar hittum við fyrir hana Oddný Birnu í góðum höndum skælbrosandi foreldranna Önju og Ársæls. Veðrið lék við okkur og á laugardeginum kíktum við á hana Maríu vinkonum okkar í Trollhattan þar sem hún var svo almennileg að græja siglingu á léttum mótorbát á Gautaskruðinum. Það sló algerlega í gegn og við áttum ljómandi huggulegan laugardag saman. Á leiðinni heim fórum við í vatnarennibrautareið mikla í Mölndal. Þar var hljóðmúrinn og nylon sundfatanna þanið til hið ítrasta þegar mest gekk á. Þangað verður sko farið aftur í næstu heimsókn, alveg klárt!

Myndir - Gautaborg Feb 2011

Mynd
Við brugðum undir okkur betri fætinum og fórum í helgarferð til Gautaborgar til fundar við Önju, Ársæl og Ástu (frænku, systir, mághzu) Við áttum yndislega helgi og nutm fallegs veðurs þrátt fyrir hressilega bláar "hita" tölur á mælum.

Myndir - tunnusláttur og búningagleði

Mynd
Við hittumst einn sælann sunnudaginn þrjár fjölskyldurnar og slógum tunnu í hel, klædd hinum ýmsustu og flottustu búingum.  Geishan og nornin 

Jól og áramót 2010/2011 - Myndir

Mynd
Jæja, það var víst löööngu kominn tími á að skutla inn smá skammti frá stundunum sem við áttum í góðum félagsskap um jól og áramótin hér um (ehemm) daginn. Við fengum marga góða gesti víða af (Hjörtur, Jakob, Maria og Elin) og eyddum svo áramótunum í Gautaborg hjá heiðurshjúunum Önju og Arsæli. Mmm, góðir tímar ....

Vegaferd2010 - myndir, skammtur 2

Mynd
 Lokaskammtur af myndum kominn inn. Hér má sjá svipmyndir af sólardegi á Emerson, Lundúnarferð, Brusselheimsókn, Tilburg og Amsterdam í Hollandi og svo síðasta nóttin í stórkósí heimagistingu í úthverfi Hamburg. Góðar stundir

Vegaferð 2010 - myndir, skammtur 1

Mynd
Jæja þá er maður búinn að slumma inn fyrstu hrinu af myndunum frá ferðalagi okkar um NV-horn Evrópu í Júlí mánuði. Við fengum konunglegar móttökur hjá Ástu frænku í Englandi og brölluðum ýmislegt þar í 5 daga. Vorum voða dugleg í badminton, ríkulegum morgunmat og útsoferí. Kíktum m.a. í Brighton, Crowleytúr, Emerson, Bangsimon heimkynninn ofl. Svo kom að því að bruna til Dover á ferð okkar til Brussel. En meira um það síðar...

Útilegur Vízindaklúbbsins anno 2010 - myndir

Mynd
Vízindaklúbburinn átti náðuga endurfundi í sumar og gerði sér dagamun í tvígang úti í náttúrunni með börnum og buru. Alltaf gott veður og stuð. Að venju.

Tilsvör

Tusku-faðir: Baldur Freyr, ekki fara inn á skónum. Við vorum að skúra og það er blautt úti. Bolta-sonur: Æi, ég er kominn inn. Labba bara til baka. Moppan stendur hvort sem er þarna við hliðina. Getið þið ekki bara skúrað aftur? Þið eruð ung og frísk. Snjall drengur. Klykkir út með gullhömrum. Skák og mát. Ég skúra bara aftur.

Á vegum úti - D12: Hamborg

Það er ræs. Hamborg bíður. Stöðumælirinn rennur út kl 10 en snör og samhæfð handtök ferðalanganna gera okkur af stað að rúlla af stað 10:14. Og svo er bara keyrt. Og keyrt, langleiðina til Osnabruck þar sem áð er í hádeginu á McFlugnager með mykjufýluna á vangann á útiborðunum. Bara eins og í sveitinni. Það eru sagðar gátur og brandarar gegnum lofkælda klósetthurðina á McD, Baldur Freyr er í feikna stuði inni á náðhúsinu. Við skiptum um bílstjóra og eftir einungis 1 km lendum við í vel útilagðri umferðarteppu við Onsabruck. Þar silumst við á hraða snigilsins í klukkutíma eða svo. Loks náum við upp eðlilegum umferðarhraða og brunum áfram þjóðveginn uns það er kominn tími á pissustopp og ís. Hér geysar 32 stig í skugga og úrvalið í vegasjoppunni er dálaglegt. Das Trucker sómir sér vel við hlið bláu myndanna í rekkanum. Samhengi? Þrátt fyrir handskrifuð og takmörkuð plögg náum við að ramba inn á úthverfið Barsbuttel og lendum klukkan hálfsjö hjá heiðurshjónunum á Bergredar 11. Hér er ...

Á vegum úti - D13: Heimferð

Sváfum eins og englar. Dýrindis morguverður er framreiddur framar vonum af heiðurshjónunum á neðri hæðinni. Í borðstofunni gefur að líta afar áhugaverðar ljósmyndir frá 9. áratugnum. Hér hefur verið heimavöllur sonarins. Stoltur benzeigandi með liðað sítt að aftan í bleikum krumpustuttbuxum stillir sér upp við kaupin. Við þökkum fyrir okkur á bágborinni þýsku framreiddri af talvél hópsins, Ástu Jakobs, ásamt táknmáli. Við gerum upp og skorum þónokkur stig við að leiðrétta peningatalninguna sem hallaði á gestgjafana. Brunum af stað kl 11:14. Það er áningarstaður í landamærabúllunni. Hér er enginn smámarkaður og spákaupmennska. Hér er allt til alls, aðallega sykurvörur og fljótandi. Við tölum um kasino á móti súpermarkaðinum ásamt flutningabílaþvottasöð. Við fyllum á belgina á Burger King, utandyra í 30+ hita. Skipt er um bílstjóra og Fjón sýnir skemmtanagildi sitt enn á ný. Ég steinsef yfir eyjuna grænu og vakna ekki fyrr en skammt frá ísstoppi á sjálandi. Við erum á leið heim. ...

Á vegum úti - D11: Amsterdam 2

Það er bæjartúr í blíðuna eftir ríkulegann morgunverð og við þræðum okkur inn að bæjarmiðjunni með nauðsynlegu kaffihúsastoppi. Túristarnir fara í bátsferð en heimafólkið sitja hjá þetta sinnið og slaka á við síkjabakkann. Við fræðumst um hús og skurði af þrítyngdu segulbandinu. Ásta Lísa er ekki sérlega bergnumin af segulbundnum fróðleiknum og leitar niður á gólfið í leit að skugga. Hún kemur sér vel fyrir á gólfinu við fótskör meistarans og hylur sig peysu móðurinnar og dundar sér við að flétta bönd bakpokans. Við röltum svo sem leið liggur niður á Leidseplein eftir siglinguna og finnum þessa drellifínu wok-frátökubúllu, wok to walk . Afar velútfærð hugmynd þar sem skilvirkni og einfaldleiki afgreiðslu er í fyrirrúmi. Hér er búið að meistra færibandawok þar sem hver hefur sitt sérskipaða hlutfverk (afgreiðsla, samtínari, steikjari). Krakkarnir velja sér þó frekar, ekki að óvörum, McD sem er beint á móti. Í kaupbæti náum við að sjá restina af dansýnsingu á leið í sporvagn 7 á le...