Þá eru nokkrar skræður komnar úr lestri og nýjar komnar í lestrarlestina.
Í lestri:
Búnar
Í lestri:
- Í skinni ljónsins (Michael Ondatje) - fjölþráða söguflétta af innflytjendum og landnemum
- Managing Humans - umbúðalaus og hnellin 15+ ára reynslusaga úr hugbúnaðarbransanum í Sílikondal. Gríp í þessa inn svona inn á milli eftir geðhrifum og tímarými
Búnar
- Með bakið í heiminn - sýn fréttakonunnar norsku, Åsne Seierstad, á lífið og baslið í Serbíu á meðan hún dvaldi þar frá 2000-2004
- Myrká, Arnalds nýjasta. Tekur smá hliðargötu í frásagnarstíl en annars sama deigið í þessari spennuköku sem og fyrri bakstri
- Bóksalinn í Kabúl - mig langaði að ná í engilinn frá Grosný en hún var úti. Þessi reyndist alveg prýðis frásögn. Meiri (skáld?)saga heldur en fréttamannsfrásögn/viðtöl eins og Serbíubókin var meira viðtalsbók
Ummæli