Það sturtast niður regnið þessa stundina. Veðurmaðurinn á DR benti á bláa og fjólubláa klessu yfir Sjálandi sem tákn láþrýstisvæðisins sem er ábyrgt fyrir þessu úrhelli.
Vonandi verður veðrið nú ögn þurrara næstu 4 dagana en þá erum við öll fjölskyldan í fríi. Hlakka mikið til að slaka á og safna smá orku með genginu.
Ýmsar breytingar, tískusveiflur og dillur eru að gera vart við sig hjá ungviðinu.
Ásta er líklega komin yfir mjólkurofnæmi sitt en við höfum smá verið að prófa okkur áfram með að gefa henni mjólk og mjólkurmat. Núorðið fréttist af dömunni þamba mjólk í akkorði hjá dagmömmunni. Um að gera að nota tímann á meðan mamma og pabbi sjá ekki.
Systkinin eru búin að uppgötva Koldskål og hafa hakkað í sig nokkrar skálar með gegnumdrekktum kammerjunkers. Svaka gott.
Það er helst á hverjum morgni sem Ásta verður að fá að pumpa í framdekkið á hjólinu áður en við hjólum upp í Nærum.
Baldur litaði hárið á Kiwanis (bangsanum) blátt í dag. Hann er með bláan hanakamb greyið. En Baldur sagði að hann (kiwanis) hefði dreymt um að fá blátt hár. Og hvað gerði Baldur annað en að láta draum hans rætast?
Baldur er líka að uppgötva kvenkynið. Farinn að spekúlera í brjóstum og sætum stelpum. Hafði orð á því við Alexander vin sinn í dag að starwars stelpan væri með brjóst (tí hí hí). Fór svo alveg á yfirsnúning þegar systir Alexander kom með pabba sínum að sækja hann. Hljóp um allt og lét eins og kjáni. En bara til að hafa það á hreinu: hann vill ekki leika við stelpur, bara töff stráka (að eigin sögn).

Ummæli