Fara í aðalinnihald

Á siglingu með sveppum inn í september...

Okkur var svo sannarlega úthlutað besta veðrðinu í sumarfríinu okkar, en undir lok þess tók að rigna og hefur það viðhaldist nokkuð stöðugt í ágúst. En gestir og gangandi veita ljós inn um dúndrandi regndropana sem bylja á sveppunum sem skjóta sér upp í upphafi haustsins...


Það hefur nú verið mjúk lendingin eftir sumarfríið. Gestir og gangandi
hafa sett sitt mark á heimilislífið og séð til þess að við fengjum ekki
harðan skell í hversdagslífið.

Maggi sæla sjálfur mætti í Sölleröd Park fyrir tæpum tveimur vikum og
gisti framyfir helgina í góðu yfirlæti og gaman að fá að hitta langþráð
andlit á ný.



Alsendis óvænt kom svo Gilli fljúgandi frá Noregi með Hilmari bróður
sínum sama dag og við náðum að hittast á laugardagskvöldinu við mikinn
fögnuð. Gilli skreið svo í ylvolgar rekkjuvoðirnar frá Magga sælu í
svefnsófanum í Sölleröd Park á Mánudeginum. Eftir skrepp upp á Jótland
kom svo Gilli aftur á föstudeginum og tókum við þá upp þráðinn í seinni
hluta bjórsmökkunnar frá því á mánudeginum. Við virtums vera nokkuð
samrýmdir í ást okkar á Porter bjórnum frá Carlsberg..



Í hádeginu í dag sá ég svo nokkra starfsmenn Microsoft í Vedbæk stika
um í skóginum með poka. Fljótlega sá ég að þeir voru að tína sveppi í
hádegishléinu. Það er því víst að koma haust...

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Úps!

Svið: Á leið heim í lestinni sunnudagskvöldið 4. janúar Persónur: fjölskyldan situr með 4 stk ferðatöskur, nýkomin úr flugi frá 2 viknar fríi á Íslandi Ásta Lísa (ÁL): Pabbi, ég þarf að pissa Pabbinn (ég): Ok, klósettið er bara hérna rétt hinu megin við hornið. Taktu í hendina á mér, lestin vaggar svolítið og við gætum dottið. Hérna er þetta. Prófaðu að ýta á takkan, þá opnast hurðin (ÁL ýtir á takkann og við blasir miðaldra feitlaginn maður sem situr á salerninu "í hægðum sínum") Ég: Úps, fyrirgefðu. Vissi ekki að það væri ólæst. (ýti aftur á takkan og loka hurðinni aftur. Það kemur ekki í veg fyrir að 2,27 rúmmetrar af geigvænlega fúlu þarmalofti sleppa fram í ganginn. Við röltum til baka og setjumst í sætin sposk á svip. Allir í vagninum skilja og finna lykt af því sem gerðist. Vandræðaleg brosin og allir reyna að láta sem ekkert hafi gerst. Þá kemur hreinskilni barnsins...) ÁL: Það er kúkafýla (sniff sniff, sogið upp í nefið til að vera viss) ÁL: Pabbi, það er vond lykt.

Laugavegurinn hjólaður - myndir

Þann 16. júlí hjóluðum við fjórir félagarnir (ég. Lalli, Snorri og Tolli) frá Landmannalaugum til Bása í Þórsmörk, sem í daglegu tali kallast Laugarvegurinn. Þetta var í alla staða eftirminnileg og frábær ferð í góðum félagsskap sem hélt vel í þá 14 tíma sem við hjóluðum, teymdum upp brekkur, ísskafla og ár. Ferðalokin í Básum klukkan fjögur um nótt voru kærkomin með Thai hnetusmjörskjúklingarétti og mikið var gott að leggjast til hvílu í tjöldunum. Meira segja myndir en mörg orð...

Laugarvegurinn hjólaður

Þessi hugmynd að taka einn góðann hjólatúr fæddist á vormánuðum hjá meistara Lárusi. Og undirbúningurinn og stemmningsuppbyggingin fór á fullt. Ekkert var sparað til í pökkunarlistum, ferðaáætlunum og gögnum um fyrri slíkar ferðir þar sem hægt er að horfa á myndbönd, sjá gps, lesa lýsingar og sjá myndir. Spennan var orðin þónokkur á sunnudeginum 15 júlí þegar ég var að pakka í bakpoka og elda mat fyrir hópinn inn á milli þess að smyrja nesti fyrir ferðina. Mánudagsmorguninn 16. júlí stóðum við Tolli, Lárus og Snorri klárir á BSÍ eins og hinir túristarnir og gerðum okkur klára í rútuna í Landmannalaugar kl 8. Við komum hjólunum okkar fyrir í einni af tveimur smekkfullu rútunum en tjöld ofl sendum við með annarri rútu upp í Þórsmörk. Eftir nokkuð hoss og hopp vorum við upp í hinum stórbrotnu landmannalaugum þar sem var bara frekar mikið um manninn. Hjólin komu nokkuð heil út úr þessu nema að aftari bremsudiskur hjá mér hafði beyglast en það var lagað fljótt og örugglega. Veðrið var