Fara í aðalinnihald

Færslur

Sýnir færslur í flokknum AFR

Pókerfésið á stigapallinum

Það var svo ljómandi gott veður í gær, sól og blíða. Við krakkarnir fórum í innkaupaleiðangur eins og 86,56% Dana ástunda á laugardagsformiðdögum. Gekk líka svona ljómandi vel og ég keypti ýmislegt girnilegt "gúrme" í tagliarini réttinn úr Jamie bókinni. Hanna gaf mér hana nefnilega á fimmtudagskvöldið áður en hún skrapp til Stokkhólma með Elvu. Ég sveif því um á milli hillnanna í Super Best með krökkunum að tína stórblöðótt sellerí, ólívur, sítrónur, pecorino og parmesan ost og svo framvegis. Þegar við roguðumst upp með pokana sat Anders úti og sleikti sólina. Ásta var fljót að hlaupa til hans og byrjaði að blaðra út í eitt við hann að venju. Ég var aðeins meira til baka en spjallaði þó svolítið við hann. Anders var ekki mjög skrafhreifinn og horfði meira upp í himinbláan en á okkur. Það var algert pókerfés á kallinum og ekkert að heyra minnst á hinn nýja almannaróm um að forsetisráðherra vor væri helsti frambjóðandinn í stól forseta Evrópu. Engin svipbrigði, alger póker.

Andspænis Anders

Hnarreistur stóð Baldur Freyr andspænis Anders hérna úti á stigapalli. Dró andann djúpt og gekk fjögur skref til móts við hann, rosalega hugrakkur. Ásta Lísa var hinsvegar alveg að kæfa Anders með knúsi þannig að móður hans fannst ekki annað hægt en að bjóða okkur inn fyrir. Baldur Freyr var eitthvað smeykur við galsann í Anders þannig að úr varð að hann var settur afsíðis inn í herbergi um sinn. Við spjölluðum við mömmu hans um daginn og veginn. Svo hepping vorum við að fá að sjá helstu viðfangsefni og gleðigjafa hans sem geymdir eru í skálinni inn í stofu. Krakkarnir voru forvitnir og handfjötluðu dýrgripina. Anders heyrði strax í gegnum hurðina að verið væri að fikta með eigur hans og varð svolítið órólegur. Mamma hans teygði sig upp í skáp bak við nokkrar þykkar ritraðir og fiskaði út merkilegan grip. Þetta var jólagjöfin hans Anders sem er í miklu uppáhaldi hjá honum og halda verður til hliðar til að hann verði ekki of æstur. Þessi gula gaddakylfa er líka ekkert smá flott. Við vor...

Höfðinu styttri

Afhöfðunin var greinilega nýyfirstaðin því stubburinn lá í vegakantinum. Engin birta myndi framar stafa frá toppstykkinu, hlutverki hans lokið í þessu lífi. Enda langt síðan Dong skipti út ljósastaurunum á Grísastígnum sem og meirihluta gatnakerfis kommúnunnar . Hinir stílhreinu og reffilegu svörtu stálstaurar beygja höfuð sitt í lotningu yfir hjólreiðamenn og aðra vegfarendur á stígnum. Gömlu timburstaurarnir gera það ekki meir og eru nokkrir eftir á stangli inn á milli. Meðal þeirra var sá afhöfðaði sem var gerður metranum styttri til að rýma til fyrir hinu alsjáandi stafræna auga. Á svörtu stílstaurunum hefur nefnilega verið komið fyrir tveimur settum af nýtísku eftirlitsmyndavélum sem filma alla umferð um stíginn sem rúllar framhjá granna vorum Anders Fogh Rasmussen. Nú er spurning hvort löggimann hætti að hnita hringina þarna uppfrá eða ekki með tilkomu þessarar nýjungar? Eða er þessi viðbót tilkomin vegna nýlegrar heimsóknar AFR til Bush í Texas í síðustu viku eða endurprentann...

Góðir grannar

Það var loksins að ég sá framan í nágrannan okkar hérna hinu megin götunnar. Síðasta föstudag hjólaði ég hina vanabundu leið eftir grísastígnum á leið úr vinnunni. Þennan spotta hef ég hjólað ósjaldan síðustu 2,5 árin og það er oftast einn löggimann á vappinu í brekkunni neðan við stíginn. Fyrstu skiptin furðaði ég mig á því að lögga í fullum skrúða væri að birtast á miðjum hjólastígnum. Eru menn algerlega að tapa sér í hjólaljósaeftirlitinu? Skýringuna fékk ég síðar frá Gunnari í vinnunni... Nema hvað, á föstudaginn síðasta sá ég lögguna sem fyrr við stíginn. Hann var á spjalli við skokkara sem var sko með ljósin í lagi. Blikk á höndum og fótum svo að svartklæddi kroppurinn væri nú sýnilegur. Eftir því sem ég nálgaðist varð ljóst hver skokkarinn var. Augu okkar Anders Fogh mættust og sameiginlegur skilningur okkar á alheiminum flæddi milli í köldu loftinu á þessum fáu sekúndum. Það er gott að eiga góða granna sem eiga eitthvað undir sér. Nú er málið að redda sér skokkmúnderingu og rey...