Fara í aðalinnihald

Maí 2006, Baldur Freyr

Kronborg kastalinn hans Hamlets kveður okkur

Fannar Logi er kærastinn hans Baldurs. Loksins fær maður bíl! Leikur sér á dönsku.


  • Er sem fyrr mikið að spekúlera. Kærustur/kærastar er hugak sem spáð er í. Pabbi: hvað heitir kærastan þín? Þetta spinnst upp úr samtali við Dagný þar sem hann er að slá aðeins saman því að Dagný og Hjörtur eru kærustupar, en jafnframt vinir. Ályktun: "Fannar Logi er kærastinn minn"
  • Fær mannréttindabrot sitt leiðrétt þegar bíll er keyptur inn í fjölskylduna. Loksins! Og mikið er minn maður stoltur, alveg að rifna og leyfir hverjum sem vill að heyra og sjá að þarna standi nú nýi bíllinn hans.
  • Er mikið í því að ögra og reyna á þanþol foreldranna. Getur verið á stundum alveg fram úr hófi óskammfeilinn. Hráka-, fruss- og rassatímabilið í fullum gangi.
  • Það finnst lús á ný og það þarf að fara í kemba-sápa-kemba ferlið aftur. Stendur sig eins og hetja greyið í þessu óþverra verki
  • Sólarvarnarsmurning breyta morgunstundum í hálfgerða martröð þegar það brestur á með brakandi blíðu og 25 gráðu hita í 10 daga í maíbyrjun. Allir verða bara fegnir þegar kólnar á ný og sólin fer bak við skýin á ný.
  • Ný dilla að lesa "pabba bækur". Hefur sofnað með enska reyfara og vísindaskáldsögur í fanginu.
  • Talar iðurlega dönsku við sjálfan sig þegar hann er í leik.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Úps!

Svið: Á leið heim í lestinni sunnudagskvöldið 4. janúar Persónur: fjölskyldan situr með 4 stk ferðatöskur, nýkomin úr flugi frá 2 viknar fríi á Íslandi Ásta Lísa (ÁL): Pabbi, ég þarf að pissa Pabbinn (ég): Ok, klósettið er bara hérna rétt hinu megin við hornið. Taktu í hendina á mér, lestin vaggar svolítið og við gætum dottið. Hérna er þetta. Prófaðu að ýta á takkan, þá opnast hurðin (ÁL ýtir á takkann og við blasir miðaldra feitlaginn maður sem situr á salerninu "í hægðum sínum") Ég: Úps, fyrirgefðu. Vissi ekki að það væri ólæst. (ýti aftur á takkan og loka hurðinni aftur. Það kemur ekki í veg fyrir að 2,27 rúmmetrar af geigvænlega fúlu þarmalofti sleppa fram í ganginn. Við röltum til baka og setjumst í sætin sposk á svip. Allir í vagninum skilja og finna lykt af því sem gerðist. Vandræðaleg brosin og allir reyna að láta sem ekkert hafi gerst. Þá kemur hreinskilni barnsins...) ÁL: Það er kúkafýla (sniff sniff, sogið upp í nefið til að vera viss) ÁL: Pabbi, það er vond lykt.

Laugavegurinn hjólaður - myndir

Þann 16. júlí hjóluðum við fjórir félagarnir (ég. Lalli, Snorri og Tolli) frá Landmannalaugum til Bása í Þórsmörk, sem í daglegu tali kallast Laugarvegurinn. Þetta var í alla staða eftirminnileg og frábær ferð í góðum félagsskap sem hélt vel í þá 14 tíma sem við hjóluðum, teymdum upp brekkur, ísskafla og ár. Ferðalokin í Básum klukkan fjögur um nótt voru kærkomin með Thai hnetusmjörskjúklingarétti og mikið var gott að leggjast til hvílu í tjöldunum. Meira segja myndir en mörg orð...

Laugarvegurinn hjólaður

Þessi hugmynd að taka einn góðann hjólatúr fæddist á vormánuðum hjá meistara Lárusi. Og undirbúningurinn og stemmningsuppbyggingin fór á fullt. Ekkert var sparað til í pökkunarlistum, ferðaáætlunum og gögnum um fyrri slíkar ferðir þar sem hægt er að horfa á myndbönd, sjá gps, lesa lýsingar og sjá myndir. Spennan var orðin þónokkur á sunnudeginum 15 júlí þegar ég var að pakka í bakpoka og elda mat fyrir hópinn inn á milli þess að smyrja nesti fyrir ferðina. Mánudagsmorguninn 16. júlí stóðum við Tolli, Lárus og Snorri klárir á BSÍ eins og hinir túristarnir og gerðum okkur klára í rútuna í Landmannalaugar kl 8. Við komum hjólunum okkar fyrir í einni af tveimur smekkfullu rútunum en tjöld ofl sendum við með annarri rútu upp í Þórsmörk. Eftir nokkuð hoss og hopp vorum við upp í hinum stórbrotnu landmannalaugum þar sem var bara frekar mikið um manninn. Hjólin komu nokkuð heil út úr þessu nema að aftari bremsudiskur hjá mér hafði beyglast en það var lagað fljótt og örugglega. Veðrið var