Jæja, þá er ég búinn að skella inn
næsta skammti af myndunum frá fríinu okkar í sumar uppi á Íslandinu góða. Kominn upp að Verslunarmannahelginni í
Vatnaskógi og svo sæludögum í
Syðri-Knarrartungu.
Forsmekkur hér að neðan....

Systkinin í búðinni hjá Ástu frænku

Hanna er svo margsigld kassadama og sýnir að hún hefur sko engu gleymt frá gullaldarárum Kaupfélagsins í Þorlákshöfn. Hér þarf þó ekki að panta rjómann með 2ja daga fyrirvara úr MBF, nú er brennt í Bónusinn

Baldur Freyr var slyngur á posann og sjóðsvélina

Kartöflusáðvélin prufukeyrð
0 comments:
Sendu inn athugasemd