Fara í aðalinnihald

Ekki alveg andvana - nýjar myndir komnar


Var einmitt búinn að vera að hugsa um það lengi hversu ergilegt það er að facebook virðist vera að ná langleiðina með að svæfa niður blogg og tölvupósta. Allt fer fram innan facebook í formi örskilaboða og maður lufsast ekki lengur inn hér og párar orð (hljóma bara eins og gamall afdalakall, eða hvað?)


Nema hvað, loksins druslaðist ég til að setja inn nýjar myndir. Og það ekki af verri gerðinni, frá stórfenglegri rokkreisu 17-22 júní sl þar sem ég, Hjörtur og Ari héldum í mikla reisu þar sem ævintýri voru á hverju stráii (mest sjálfssköpuð þó). Lagt var upp með þemu til að halda smá samræmi, en áhöld eru um það hversu vel tókst til. Til dæmis fór þemað "Skynsemi" alveg einhvernvegin út af sporinu en þemað "ógeð" tókst fram úr björtustu vonum.
Sjáið og njótið hér


Ummæli

murta sagði…
Já, góðan daginn!
Nafnlaus sagði…
Þetta hefur verið hin glæstasta ferð! Jú tímarnir breytast víst, það er þó bót í máli að það er hægt að flytja blogg inn á facebook, inn í þann hraðsuðupott ef svo má kalla. Það eru plúsar og mínusar á þessu öllu saman.. en fyrir fólk sem hefur lifað tímana tvenna líkt og af okkar meiði þá er þetta alltsaman mikið umhugsunarefni...hmm

Pib

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Úps!

Svið: Á leið heim í lestinni sunnudagskvöldið 4. janúar Persónur: fjölskyldan situr með 4 stk ferðatöskur, nýkomin úr flugi frá 2 viknar fríi á Íslandi Ásta Lísa (ÁL): Pabbi, ég þarf að pissa Pabbinn (ég): Ok, klósettið er bara hérna rétt hinu megin við hornið. Taktu í hendina á mér, lestin vaggar svolítið og við gætum dottið. Hérna er þetta. Prófaðu að ýta á takkan, þá opnast hurðin (ÁL ýtir á takkann og við blasir miðaldra feitlaginn maður sem situr á salerninu "í hægðum sínum") Ég: Úps, fyrirgefðu. Vissi ekki að það væri ólæst. (ýti aftur á takkan og loka hurðinni aftur. Það kemur ekki í veg fyrir að 2,27 rúmmetrar af geigvænlega fúlu þarmalofti sleppa fram í ganginn. Við röltum til baka og setjumst í sætin sposk á svip. Allir í vagninum skilja og finna lykt af því sem gerðist. Vandræðaleg brosin og allir reyna að láta sem ekkert hafi gerst. Þá kemur hreinskilni barnsins...) ÁL: Það er kúkafýla (sniff sniff, sogið upp í nefið til að vera viss) ÁL: Pabbi, það er vond lykt.

Laugavegurinn hjólaður - myndir

Þann 16. júlí hjóluðum við fjórir félagarnir (ég. Lalli, Snorri og Tolli) frá Landmannalaugum til Bása í Þórsmörk, sem í daglegu tali kallast Laugarvegurinn. Þetta var í alla staða eftirminnileg og frábær ferð í góðum félagsskap sem hélt vel í þá 14 tíma sem við hjóluðum, teymdum upp brekkur, ísskafla og ár. Ferðalokin í Básum klukkan fjögur um nótt voru kærkomin með Thai hnetusmjörskjúklingarétti og mikið var gott að leggjast til hvílu í tjöldunum. Meira segja myndir en mörg orð...

Laugarvegurinn hjólaður

Þessi hugmynd að taka einn góðann hjólatúr fæddist á vormánuðum hjá meistara Lárusi. Og undirbúningurinn og stemmningsuppbyggingin fór á fullt. Ekkert var sparað til í pökkunarlistum, ferðaáætlunum og gögnum um fyrri slíkar ferðir þar sem hægt er að horfa á myndbönd, sjá gps, lesa lýsingar og sjá myndir. Spennan var orðin þónokkur á sunnudeginum 15 júlí þegar ég var að pakka í bakpoka og elda mat fyrir hópinn inn á milli þess að smyrja nesti fyrir ferðina. Mánudagsmorguninn 16. júlí stóðum við Tolli, Lárus og Snorri klárir á BSÍ eins og hinir túristarnir og gerðum okkur klára í rútuna í Landmannalaugar kl 8. Við komum hjólunum okkar fyrir í einni af tveimur smekkfullu rútunum en tjöld ofl sendum við með annarri rútu upp í Þórsmörk. Eftir nokkuð hoss og hopp vorum við upp í hinum stórbrotnu landmannalaugum þar sem var bara frekar mikið um manninn. Hjólin komu nokkuð heil út úr þessu nema að aftari bremsudiskur hjá mér hafði beyglast en það var lagað fljótt og örugglega. Veðrið var