Fara í aðalinnihald

Flutt!

Já við erum flutt til Nærum! Það gerðist með atlögu fyrstu helgina í desember en allt gekk svaka vel með frábærri hjálp frá Jónasi, Gumma, Enok og Marjan. Að maður tali nú ekki um Sluseholmen gengið sem voru með gríslingana tvo í góðu yfirlæti þar sem þau hökkuðu í sig fiskinn hennar Dagnýar og nutu "öskurlaganna" hans Hjartar. Þúsund þakkir, þetta var ómetanleg hjálp fyrir okkur.

Og svo mun þetta vefsvæði verða framtíðarmiðlunarbúnaður fjölskyldunnar. Enn er unnið að gagnaflutningi síðustu ára og er ekki laust að gamall fiðringur taki sig upp þegar maður þjösnast á mysql fyrirspurnum, setur breakpoint og googlar svo það sem er ekki alveg að smella. Orðið nokkuð síðan maður var í þeim pakkanum. Meira orðið svona ferlar og fólk núorðið, sem er líka gott.

Krakkarnir sitja í sófanum og horfa á disney stundina (sem er ein besta uppfinning dana í sjónvarpsefni) með hluta jólaballssælgætispokans frá síðustu helgi. Það var víst lendingin í samningaviðræðunum síðasta sunnudagseftirmiðdag. Og látið ykkur ekki dreyma um að Baldur Freyr hafi verið búinn að gleyma því...

Ummæli

Til hamingju með flutninginn - bæði vefinn og húsið - og velkomin á blogger. Mikið er gaman að heyra í ykkur á ný. Vona að þið skrifið sem mest svo ég hafi eitthvað að gera á laugardagsmorgnum í vetur en þá tek ég bloggrúntinn minn. Kv. Kgb
Unknown sagði…
Já takk fyrir það Kristín. Það verður nú að segjast að það kom nú ekki algerlega á óvart að þú hafir verið manna fyrst að skrifa hér á vefinn. Og já, nú er ég í raun að endurnýja kynni mín af Blogger því ég byrjaði að nota græjuna 1998 þegar þetta var bara lítið nördafyrirtæki í Bandaríkjunum. Svo varð sílið að fiski og þá kom google-geddan og gleypti það, haps! Sem er bara gott fyrir alla....

Sjáumst innan skamms, innan viku verðum við í firðinum!
Nafnlaus sagði…
Til hamingju með nýja fangið. Hlakka til að sjá ykkur í Roklandi

Kv

Maggi Sæla

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Úps!

Svið: Á leið heim í lestinni sunnudagskvöldið 4. janúar Persónur: fjölskyldan situr með 4 stk ferðatöskur, nýkomin úr flugi frá 2 viknar fríi á Íslandi Ásta Lísa (ÁL): Pabbi, ég þarf að pissa Pabbinn (ég): Ok, klósettið er bara hérna rétt hinu megin við hornið. Taktu í hendina á mér, lestin vaggar svolítið og við gætum dottið. Hérna er þetta. Prófaðu að ýta á takkan, þá opnast hurðin (ÁL ýtir á takkann og við blasir miðaldra feitlaginn maður sem situr á salerninu "í hægðum sínum") Ég: Úps, fyrirgefðu. Vissi ekki að það væri ólæst. (ýti aftur á takkan og loka hurðinni aftur. Það kemur ekki í veg fyrir að 2,27 rúmmetrar af geigvænlega fúlu þarmalofti sleppa fram í ganginn. Við röltum til baka og setjumst í sætin sposk á svip. Allir í vagninum skilja og finna lykt af því sem gerðist. Vandræðaleg brosin og allir reyna að láta sem ekkert hafi gerst. Þá kemur hreinskilni barnsins...) ÁL: Það er kúkafýla (sniff sniff, sogið upp í nefið til að vera viss) ÁL: Pabbi, það er vond lykt.

Laugavegurinn hjólaður - myndir

Þann 16. júlí hjóluðum við fjórir félagarnir (ég. Lalli, Snorri og Tolli) frá Landmannalaugum til Bása í Þórsmörk, sem í daglegu tali kallast Laugarvegurinn. Þetta var í alla staða eftirminnileg og frábær ferð í góðum félagsskap sem hélt vel í þá 14 tíma sem við hjóluðum, teymdum upp brekkur, ísskafla og ár. Ferðalokin í Básum klukkan fjögur um nótt voru kærkomin með Thai hnetusmjörskjúklingarétti og mikið var gott að leggjast til hvílu í tjöldunum. Meira segja myndir en mörg orð...

Laugarvegurinn hjólaður

Þessi hugmynd að taka einn góðann hjólatúr fæddist á vormánuðum hjá meistara Lárusi. Og undirbúningurinn og stemmningsuppbyggingin fór á fullt. Ekkert var sparað til í pökkunarlistum, ferðaáætlunum og gögnum um fyrri slíkar ferðir þar sem hægt er að horfa á myndbönd, sjá gps, lesa lýsingar og sjá myndir. Spennan var orðin þónokkur á sunnudeginum 15 júlí þegar ég var að pakka í bakpoka og elda mat fyrir hópinn inn á milli þess að smyrja nesti fyrir ferðina. Mánudagsmorguninn 16. júlí stóðum við Tolli, Lárus og Snorri klárir á BSÍ eins og hinir túristarnir og gerðum okkur klára í rútuna í Landmannalaugar kl 8. Við komum hjólunum okkar fyrir í einni af tveimur smekkfullu rútunum en tjöld ofl sendum við með annarri rútu upp í Þórsmörk. Eftir nokkuð hoss og hopp vorum við upp í hinum stórbrotnu landmannalaugum þar sem var bara frekar mikið um manninn. Hjólin komu nokkuð heil út úr þessu nema að aftari bremsudiskur hjá mér hafði beyglast en það var lagað fljótt og örugglega. Veðrið var